Skilmálar
1. ALMENN ÁKVÆÐI
Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru eða þjónustu á netverslun Skincarelab.is sem rekin af RS Snyrtivörum ehf., kt. 490104-2080, Dalvegi 16D, 200 Kópavogi. Til einföldunar verður hér eftir talað um „SKINCARELAB“ í skilmálunum. Í skilmálunum eru skilgreind réttindi og skyldur SKINCARELAB annars vegar og kaupanda vöru eða þjónustu hins vegar. Hafi skilmálarnir ekki verið samþykktir við nýskráningu á vefsíðu SKINCARELAB teljast þeir samþykktir við fyrstu kaup á vöru eða þjónustu.
„Kaupandi“ er einstaklingur, sem er aðili samnings en stundar ekki viðskipti eða aðra athafnastarfsemi, þ.e. einstaklingur sem kaupir vöru eða þjónustu í skilningi laga um neytendakaup nr. 48/2003. Kaupandi verður að vera a.m.k. 16 ára. „Kaupandi“ getur líka verið fyrirtæki ef lög um þjónustukaup nr. 42/2000 eiga þá við. Þessi lög gilda um réttarstöðu samningsaðila þegar sérstökum ákvæðum þessara skilmála sleppir. SKINCARELAB selur vörur eða þjónustu til kaupanda á vefsvæði sínu. SKINCARELAB býður einnig kaupanda að fá vöruna senda heim til sín eða á þann afgreiðslustað sem afhendingaraðili býður upp á.
2. UPPLÝSINGAR OG VERÐ
Verð á vefsvæði SKINCARELAB og í útsendum tölvupóstum eru með virðisaukaskatti og eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur, prentvillur og myndvillur. SKINCARELAB áskilur sér rétt til að afturkalla pantanir í heild eða að hluta ef um innsláttar- eða prentvillur er að ræða. SKINCARELAB áskilur sér rétt til að afturkalla pantanir í heild eða að hluta ef að viðkomandi vara er uppseld, skemmd, gölluð. SKINCARELAB mun upplýsa kaupanda um allt slíkt eins fljótt og kostur er, og hugsanlega koma með tillögu að annarri vöru sem kaupanda gefst kostur á að samþykkja eða hafna.
3. PERSÓNUUPPLÝSINGAR
Á vefsíðu SKINCARELAB er aðgengileg persónuverndarstefna félagsins og er kaupendum bent á hana til frekari upplýsinga. Í þessari persónuverndaryfirlýsingu kemur fram hvernig SKINCARELAB umgengst þær persónuupplýsingar sem SKINCARELAB geymir um kaupanda og hvaða réttindi hann á varðandi upplýsingarnar.
Til að kanna öryggi vefsvæðisins, vinsamlega skoðaðu neðri stiku vafrans þíns þegar þú fyllir út greiðsluupplýsingarnar. Þar muntu sjá ólæstan lykil eða læstan lás sem sýnir að dulkóðun síðunnar sé virk og að upplýsingarnar þínar séu öruggar. Af öryggisástæðum mælum við eindregið með því að þú sendir ekki kreditkortanúmer í venjulegum tölvupósti en notar frekar öruggt umhverfi vefsíðunnar.
Þegar þú leggur inn pöntun á vefsíðunni verður þér boðið að nota háþróaðan og öruggan þjón. Hugbúnaður þjónsins dulkóðar allar upplýsingar sem þú slærð inn áður en við fáum þær sendar. Með þessum hætti ver SKINCARELAB hverja viðskiptafærsla sem fer í gegnum vefsíðuna og tryggir eftir bestu getu að aðrir aðilar hafi ekki aðgang að kortaupplýsingum kaupanda.
Engar kredit- eða debetkorta upplýsingar eru geymdar eftir að gengið hefur verið frá pöntun nema kaupandi hafi sérstaklega veitt SKINCARELAB leyfi til þess. Kreditkortaupplýsingar eru geymdar á tryggan og öruggan hátt.
SKINCARELAB fer eftir gildandi lögum og reglum um persónuvernd og úrvinnslu persónuupplýsinga.
4. SENDINGARKOSTNAÐUR OG AFHENDINGARMÁTI
SKINCARELAB sendir vörur einungis innanlands. Allar pantanir fara í gegnum Íslandspóst eða Dropp. Einnig er hægt að velja að sækja pöntun í verslun SKINCARELAB í Smáralind án aukakostnaðar.
Sendingarkostnaður bætist við pöntun áður en greiðsla fer fram. Vefverslun okkar er beintengd við póststoð Íslandspósts og sendingarkerfi Dropp og reiknast því sendingarkostnaður samkvæmt gildandi verðskrá þeirra. Enginn sendingarkostnaður er á pantanir yfir 12.900 kr.
Hægt er að velja heimsendingu, afhendingu í póstbox, pakkaport eða á afhendingarstað sem viðkomandi afhendingaraðili býður upp á. Sendingartími Íslandspósts og Dropp getur verið mismunandi eftir landshlutum.
Heimsending er einungis í boði innanlands og aðeins á þau svæði sem Íslandspóstur og Dropp þjónusta. Nánari upplýsingar má finna á vefsíðum www.postur.is og www.dropp.is.
5. SAMNINGURINN
Með greiðslu staðfestir kaupandi að hann þekki gildandi skilmála SKINCARELAB. Skilmálarnir eru aðgengilegir á vefsvæði SKINCARELAB. Hver kaup eru bindandi fyrir kaupanda samkvæmt skilmálum og skilyrðum SKINCARELAB.
6. GREIÐSLA
Greiðslu getur kaupandi innt af hendi með eftirfarandi hætti:
Kredit- eða debetkort: Greiðsla fer fram á sama tíma og kaupandi skráir kaup sín. Greiðsla með kreditkorti fer fram í gegnum örugga greiðslugátt sem kaupanda er beint sjálfkrafa til þegar hann fyllir út greiðsluupplýsingar. Þegar kaupandi staðfestir upplýsingarnar er greiðslan skuldfærð af kortinu.
SKINCARELAB tekur á móti greiðslum með VISA og MasterCard. Skincarelab tekur einnig við bankamillifærslum.
7. SKILARÉTTUR
SKINCARELAB skuldbindur sig til að afhenda kaupanda vöru í samræmi við skilmála þessa og gildandi lög.
Vörur keyptar í verslun
Kaupandi getur skilað vöru sem keypt er í verslun SKINCARELAB innan 30 daga gegn framvísun kvittunar eða reiknings.
Varan þarf að vera ónotuð, í upprunalegu ástandi og í óskemmdum umbúðum. SKINCARELAB áskilur sér rétt til að skoða vöruna áður en tekið er við skilum.
Við skil á ógallaðri vöru sem keypt er í verslun er gefin út inneignarnóta hjá SKINCARELAB. Inneignarnótu er hægt að nýta að vild í næstu kaupum hjá SKINCARELAB.
Útsöluvörum og ákveðnum tilboðsvörum fæst hvorki skilað né skipt.
Vörur keyptar í netverslun
Við kaup í netverslun hefur kaupandi 14 daga frá afhendingu vöru til að falla frá kaupunum án skýringa og fá vöruna endurgreidda, í samræmi við reglur um fjarsölu.
Til að nýta réttinn þarf varan að vera ónotuð, í upprunalegu ástandi og í óskemmdum umbúðum. Reikningur eða kvittun fyrir kaupum þarf að fylgja.
Endurgreiðsla fer fram með sama greiðslumáta og notaður var við kaupin, nema annað sé sérstaklega samið. Sendingarkostnaður vegna endursendingar er á ábyrgð kaupanda, nema um gallaða eða ranga vöru sé að ræða.
Gjafakort
Gjafakort fást ekki endurgreidd.
Hvernig er skilað?
Kaupandi getur skilað vörum í verslun SKINCARELAB í Smáralind eða haft samband við skrifstofu á netfanginu info@skincarelab.is eða í síma 545-0600.
Skrifstofan er opin mánudaga til föstudaga kl. 9:00–16:00.
8. GALLI
Ef vara er gölluð er SKINCARELAB skylt að bjóða kaupanda nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa. Samkvæmt lögum um neytendakaup nr. 48/2003 á kaupandi rétt á því að fá gallaða vöru bætta ef tilkynning berst okkur innan tveggja mánaða frá því að kaupandi varð var við galla. Skincarelab mælir með því að kaupandi sendi tölvupóst eða hringi í til SKINCARELAB sem fyrst frá því að galli uppgötvast. SKINCARELAB sendir staðfestingu til baka um móttöku tölvupóstsins. SKINCARELAB áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé gölluð innan 7 daga.
9. AFSLÁTTARKÓÐAR
Öðru hverju sendir SKINCARELAB viðskiptavinum tilboð í gegnum tölvupóst, bæklinga og auglýsingar. Ef kaupandi er meðlimur á póstlista SKINCARELAB getur hann fengið tölvupóst frá SKINCARELAB með kynningum og tilboðum með sérstökum kóðum með kaupaukum, fríum sendingum eða öðrum afsláttum. Kaupandi getur skráð sig á póstlista með því að ýta á “Skrá netfang” fremst á vefsíðu SKINCARELAB. Tilboðskóðar (nema annað sé tekið fram) eru ætlaðir til að innleysa einn kaupauka á hvern viðskiptavin og er ekki hægt að sameina með öðrum tilboðum eða afsláttum, á meðan birgðir endast. SKINCARELAB áskilur sér rétt til að skipta kaupauka út fyrir annan með sambærilegu virði.
10. ÁBYRGÐ
Ábyrgð SKINCARELAB hefur ekki í för með sér takmarkanir á rétti sem kveðið er á um í lögum um neytendakaup nr. 48/2003. Ábyrgð vegna galla á vöru er í samræmi við lög um neytendakaup og miðast við dagsetningu kaupa til einstaklinga. Ef um er að ræða sölu til fyrirtækis er ábyrgð á galla 1 ár frá kaupdagsetningu samkvæmt lögum um lausafjárkaup nr. 50/2000.
Ábyrgð fellur úr gildi ef vara hefur verið opnuð eða átt við hana án samþykkis SKINCARELAB þrátt fyrir að þar hafi verið viðurkenndur aðili. Ábyrgðin fellur líka úr gildi ef rekja má galla til illrar eða rangrar meðferðar.
SKINCARELAB áskilur sér rétt til að sannreyna að galli eða bilun heyri undir ábyrgðarskilmála innan 7 daga. Ef vara fellur undir ábyrgðarskilmála þá er SKINCARELAB skylt að bjóða kaupanda nýja vöru, afslátt eða afturköllun kaupa.
11. ANNAÐ
SKINCARELAB áskilur sér fullan rétt til að breyta ákvæðum þessara skilmála, enda verði kaupanda tilkynnt um það. Útsending nýrra skilmála til kaupanda og/eða birting á vefsíðu SKINCARELAB telst nægileg tilkynning. Litið er svo á að kaupandi hafi samþykkt breytinguna ef hann kaupir vöru eða þjónustu eftir að tilkynning um breytingu hefur verið gefin út.
12. ÁGREININGUR
Rísi ágreiningur milli aðila um efni þessara viðskiptaskilmála eða vegna brota á þeim má bera viðkomandi mál undir Kærunefnd þjónustu og lausafjárkaupa hjá Neytendastofu. Ef allt þrýtur er heimilt að reka mál vegna þessa fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur skv. ákvæðum laga nr. 91/1991
13. GILDISTÍMI
Skilmálar þessir gilda frá 15. maí 2026
Fyrir nánari upplýsingar um vörur okkar eða hvers kyns fyrirspurnir, hafið samband við á netfangið info@skincarelab.is eða í síma 545-0600, mánudaga til föstudaga á milli kl 9:00 og 16:00.